drustly
19.06.2008 15:10:54 / drustly

Hei Hei

vá ég held að ég sé ekkert góð með svona síðu maður man svona stundum og stundum eftir að blogga:^)
Ég er stödd í laugarásnum hjá pabba sem er frábært að komast í burtu frá þessum leiðinlega sauðárkrók!!!!!!!!!!!!!!!!!!! vá hvað maður er komin með mikla leið á þesu þarna á króknum :evil: það er ekkert að gera þarna það eina sem telst frétt er það að það komu ísbirnir sem er kanski ekkert gott en samt það þarf svona atburð til að fá tilbreitingu í þessum bæ!!!!!!!!! og það sökkar:$ og það eina sem fólkið nærist á er slúður um hvort annað og helst hafa það svo slæmt að það særi sem mest!!!!!!! ég meina hugsið ykkur þetta er ekkert líf!!!!!!!!
já ég þurti sko á því að komast í burtu og hlaða batterýin  í sól og sumri hérna þetta er bara æði :haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 11:39:50 / drustly

vá það er alt að verða kreisí!

vá eins og sagði hérna fyrir ofan það er alt að verða brjálað hérna í bænum, ég og biggi erum stödd í RVK, hann er á þessu námskeiði svo strákurinn komist nú aftur á sjó:$
sem betur fer þarf ég að fara sæbrautina til að skutla honum og við erum hjá eygló þannig við erum seif umferðarlega allavegana undanafarið. þessir trukka bílstjórar eru bara í því að stoppa umferð og raðirnar sem myndast VÁ þetta er ekkert grín 8| þetta er samt alveg frábært hvað allir stanada saman í þessu og fólk sem stoppast vegna þeirra er bara alveg sama og fara þessvegna bara útúr bílunum og labba sér fremst fyrir framan trukkana og standa þar bara, mer finst bara að smábæirnir ættu að taka þátt í þessu líka til að sína lit ég meina það var gert á ak þannig því ekki fleiri!!! þetta er góður málstaður og koma svo fólk:haha::haha:

en það er bara allt gott að frétta af okkur nú ekki mikið gert á kvoldin núna vegna við þurfum að vakna snemma!! en á þriðjudags kvöld fór ég og hitti kidda frænda og nítró bróðir hans og við fórum í keilu ég held bara að ég ætti að láta þessa íþrótt vera ég SOKKAÐI:^) ég tapaði feitast fyrir þeim!!!!!
en jæja ég segi þetta gott í bili adios amigo:lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.03.2008 00:12:22 / drustly

Ef þú átt vin í raun!!!!

maður hefur lent í ýmsu upp á síðkastið og muniði bara þeir sem eru ykkur næstir leitið til þeirra gerið það fyrir mig ég gerði það og ég lifi enn ég skrifa betur á morgun!!!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 18:14:24 / drustly

Ónefnd færsla

Vá það er orðið mjög lánt síðan ég hef lagt mer orð til muns það hefur bara verið svo mikið að gera eða ég skal bara segja satt ég hef bara ekki nent því:S en já ég var að hugsa núna hvað maður er að verða gamall ég meina vinkona mín sem var með mér í bekk í grunskóla er orðin mamma eða mjog líklega hún var skráð 3 des inn, og þessi stelpa var mín besta vinkona þegar ég fékk þær fréttir að hún væri ólett hugsaði ég vá og ég hef verið of bissy af sjálfum mér til þess að hringja í hana eða fara og heimsækja hana og geta filst með þegar hún er að ganaga í gegnum hennar indislegustu breitingar í lífi sínu. það er svo ömurlegt að maður þurfi svona hluti til þess að átta sig á hversu ömurlegur vinur maður er:(

það er kjánalegt hvað fólk vex frá hvort öðru sama hversu góðir vinir það er í fyrstu og tala svo varla saman og kanski þekkjast ekki þegar það sér hort annað í búðinni þetta er svo skrítið gott fólk:$ ............. en nú stittist í að við stelpurnar verðum heilar aftur dana er að koma heim um helgina og það verður svo gaman að sjá hana aftur maður getur ekki beðið en já þetta er orðið gott í bili:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 18:31:17 / drustly

Minn er veikur:(

vá hvað ég er búin að vara veik það er lánt síðan að ég hef legið og sofið allan daginn en það er ég búin að gera síðustu 2 daga:(...........en nó um það ég fór til eyja um versló og vá hvað það var geggjað gaman ég, biggi, helgi og elvar vorum þarna saman og svo fult af fleirum skagfirðingum, vá hvað það verður farið á næsta ári aftur og við fengum svo geggjað gott veður í þokkabót , þetta er svo ótrúlegt þetta er bara eeins og annar heimur þarna svona ævintýra heimur þegar þjóðhátiðin er vá eins og ég segi þeir sem eiga eftir að fara eiga að skella sér það er bara möst!!! en já ég er með einhverjar myndir frá eyjum í myndaalbúminu endilega skoðið:) 

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.07.2007 23:03:04 / drustly

jæja er ekki komin tími á nokkur orð!

Lovers IV PrintsJá jæja það var mikið að gera um þessa helgi Eygló frænka gifti sig á laugardaginn vá hvað hún og valdís (sem er konan hennar) voru glæsilegar ég og Heba við grétum þegar við sáum þær koma inn gólfið ég gæti ekki verið stoltari af hanni frænku minni að hafa gert þetta! elska þig góa mín:*........... Svo má ekki gleima versló er að koma og ég er að deyja úr spenningi ég er að fara í fyrsta skipti til eyja vá hvað það verður mergjað gaman ég get bara ekki beðið þetta er líka svo góður hópur sem er að fara þetta á eftir að vera dúndrandi stuð sama hvernig veðrið verður hehe8)........... Hvernig stendur á því að sumir strákar reina altaf að ná í það sem er ekki hægt að fá, þetta er svo ótrúlegt láta mann alveg vera eða svona nokkurnveginn:$ þegar maður er á lausu en verða svo kreisí þegar maður fer á fast æi ég er bara búin að vera velta þessu fyrir mér ég var að lenda í svoleiðis veseni og af persónu sem ég bjóst als ekki við af en svona er þetta líf ógó flókið:!: 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 16:42:26 / drustly

Sumarið er tíminn:)

Jæja gott fólk ég vona að allir hafi haft jafn góða helgi og ég, ég skemti mer allavegana mjög vel:) ég fór í brúðkaup á laugardaginn hjá sæunni maríu vá hvað hún var falleg ég fór að skæla þegar hún gekk inn kirkjugólfið hún var alveg stór glæsileg, bara innilega til hamíngju mísla mín það er frábært að þetta gekk svona vel og þú átt bjarta framtíð í magadansi:lol: en já annars er ekki mikið að frétta hjá mér! nema Robbi kallin er farinn aftur á sjó og verður til 12 ágúst!


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 02:00:30 / drustly

Hei Hei Hó Hó

Vá það er kominn slatta tími síðan ég skrifaði seinast sorry mað það maður hefur bara verið frekar mikið bissí! En já það hefur nú svoldið verið um að vera seinasta laugardag vöru matti papi og pétur jesú og Einar ú dúndurfréttum að spila á barnum og vá hvað það var gaman, við stelpurnar vorum heldur betur kátar kanski sumar einum of:^) en þetta var stuð allavegana fyrir mig og Elínborgu en hinsvegar lentu dana og þórdís heldur betur í því maður það var lessa að reyna við þær allt kvöldið og þær voru ekki sáttar grei stelpurnar voru á hlaupum í felur allt kvöldið hehe þessi manneskja var svo ágeng ég hef bara ekki séð annað eins hún var eins og graðasti karlmaður sem hefur séð þetta var allavegan mjög spes:D en samt kvöldið endaði mjög vel dana og dísa urðu lessu lausar og matti og þeir meistarar kíktu í party til mín eins og seinast8) vá hvað þeir eru skemmtilegir og alltaf jafn hressir:lol: en já svo er biggi kominn heim af sjó hanna var 30 daga úti núna vá hvað tímin var lengi að líða:( þannig maður var mjög fegin að fá hann heim:haha:  annars er mjög lítið um að vera nema það að sæunn maría frænka er að fara að gifta sig stelpan á laugardaginn til lukku með það mísla mín:* og svo er Eygló frænka líka að fara að gifta sig það er bara allt að gersat herna hjá mer hehe æi það er bara gott ef öllum gengur vel ekki satt:D

Sharing Posters by Linda Spiker


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 22:59:37 / drustly

Jæja er ekki komin timi á að segja eitthvað :)

White Beauty Poster by Frank WoottonJú ég er sko búin að vera á fullu í dag að eltast við hross vá hvað þaug geta stundum verið óþolandi en samt allveg frábær hehe:lol: og ekki nó með það þá er búið að vera 25 stiga hiti her í allan dag ég gaf mér nú tína til að liggja í sólbaði og hafa það gott í svona 2 tíma og það sérst sólin var svo geggjað sterk og það var allveg heiðskírt ekki ský á himni það var bara draumur í dós að vera hérna í dag en ég er eins og brendur koli í framan ég er eld rauð náttúrulega svitnaði maður á hlaupunum í þessum líka geðveika hita og ég var svona heppin eða þannig að ná að brenna svona í andlitinu:^) ég er bara eins og þessi kall hehehehe:lol: en já annars hefur maður ekki frá neinu miklu að segja nema bara vinna og aftur vinna maður verður nú að haga sér vel á meðan kallin er ekki heima ekki satt:D

Gullkorn dagsins: To the world you may be one person but to one person you may be the world:haha: 


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 23:51:16 / drustly

þynka og vinna ekki gott plan:(

Já ég er búinn að vera geggjað þunn í dag maður lifandi8| já eins og égsagði seinast var sjómannadags ballið í gær og vá hvað það var gaman við stelpurnar skemtum okkur geggjað vel og fengum okkur vel í tánna hehe og fengum góða hjálp frá elskunni minni honum Robba:haha: svo var það bara einhver kall sem ég hef ekki hugmynd um hver er sem gaf mér og Elínborgu staup einhver sköllóttur gamall gaur;) en frítt áfengi hehe.. en nó um sukklífið ámanni:$........ Afhverju verður maður afpríðisamur? þetta er svo ömurleg tilfinning, ég telst ekki vera afpríðissöm manneskja en það tókst í gær að gera mig þannig og vá útaf engu en svona er þetta blessaða líf alveg stór furðulegt!!!!! Ekki satt:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 17:20:18 / drustly

Sumt er bara ömurlegt:(

Jæja það er nú orðinn slatta tími síðan ég skrifaði seinast. Já eins og allir vita er sjómannadagshelgi núna og það er ekkert spes að þurfa að vinna þegar kallin mans er búinn bjóða manni á allan pakkan út að borða og á ball á eftir, en jú það getur ekki verið allt sanngjarnt í þessu öllu saman:evil: ég kemst þó á ballið og það verður geggjað gaman8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 23:29:58 / drustly

heima er best

Jæja þá er maður kominn heim í skagafjorðinn og vá hvða það var gott að komast heim:D og ótrúlegt en satt þá gekk ferðin heim bara vel ekkert gerðist enda nó búið að gerast fyrir mig í bili sambandi við bíla:S en nó um það þá átti Þórdís afmæli í gjær og það var tekið á því með stæl vá hvað við skemmtum okkur vel:lol: spútnik var að spila á barnum og það var dúndur stuð ég fór reindar bara snema heim klukkan var eitthvað um fjögur þannig maður var bara stiltur hehe. ég fór snema heim í sveitina í dag enda sem beturfer afi þurti aðstoð með kindurnar þannig ég aðstoðaði hann bara í dag og fór svo að vinna um 4 en bæbæ ég er farinn 

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 20:15:54 / drustly

Afslöppun lánt uppí sveit hehe

Jæja gott fólk þá er ég bara í afslöppun hjá pabba gamla og vá það er sko búið að vera rólegt hjá mer, reindar ferðin byrjaði ekki vel ég byrjaði að missa dekk undan bílnum og það fór lánt út í skurð og hjalti bróðir þurti að vaða úti skurðinn til að sækja dekkið hehe hann varð drullu skítugur og hann er svo mikið á gelgjunni að hann var eins og vesta pempía:D en já annars þetta er bara búið að vera mjög gaman herna ég að slæpast með krökkunum og rölta um laugarás það er staðurinn sem pabbi býr:D eins og ég segi lánt lánt uppí sveit:!:

ég kem örugglega ekki heim fyrr en á föstudag vegna litla systir mín er að fara halda uppá afmælið sitt hún er orðin 7 ára gellan8) en já eg verð nú að segja að það verður svosem gott að koma heim líka maður er farinn að sakna öllarans:P og að hitta alla kjánana mína:$ en ég nenni ekki að segja meira í bili  bæbæ:haha: Country Boy Posters by Linda Spiker


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 04:03:02 / drustly

Jamm og jæja:)

Já það er búið að gerast mikið hjá mér undanfarið, amma gamla fór í aðgerð sem var svo stór að það var bara sagt að það væru bara 50% líkur að hún myndi hafa hana af og allt það sem var í kringum það var að gera mig brjálaða úr stressi og vitleisu sem var alger óþarfi sú gamla er svo þrjósk að hún vaknaði ekki einum kl eftir aðgerðina  heldur fyr og var bara mjög hress sem var svo gott því þó við amma getum þráttað og þrefað þá þykir mér svo undur vænt um hana:) svo á ég svo yndislega vini sem hjálpuðu mér á meðan á þessu gekk ég held bara að þau hafi hjálpað mér að halda andliti og vera sterk ég gæti bara ekki ímyndað mér líf án þessara vina minna ég fann svo þarna hvað það er gott að tala við fólk sem stendur fullkomlega við bakið á mér þegar eitthvað bjátar á og ég myndi gera hvað sem er fyrir þau líka ég held sveimer þá að ég myndi ganga eld og gler fyrir þau! það er nauðsinlegt að muna að vinir eru eins og vikvæm blóm maður þarf að vökva og rækta þau eins og samband milli góðra vina:haha:haha: Og þó rósirnar hafi þyrna þá þarf að hugsa um þær.


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 18:48:02 / drustly

Hei ég á nýan frænda

Hei allir sunna frænka er búin að eiga það var lítill prins og hann fæddist í dag ooooo ég er svo happy yfir því:) en annars er voða lítið að frétta maður er bara búin að vera að djamma og vinna til skiptis! svo erum við Elínborg ornar fasta gestir uppí birkihlíðinni hehe en það er bara gaman!!!!! og ekki má gleima Robbi dúllan mín er komin heim og fer ekki aftur fyrr en eftir sjómannadag og vá hvað það var gaman að sjá hann hann er svo mikið æði 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill